06.06.2007 00:08:32 / saerunsv

Ferðalög

Ég gleymdi einum hápunkti seinasta árs, auðvitað Barcelona með Gunnari og landsbankaliðinu :D

Annar hápunktur þessa árs er París, og auðvitað sólarperlan Krít :haha:

Særún


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.01.2007 11:07:18 / saerunsv

Nýtt ár

Aloha!!!

Gleðilegt nýtt bloggár :lol:

Hvað stendur uppúr á árinu sem leið?

1. Fæðing nýs bloggfélaga, Ragnheiðarsonurinn hann Þorri,

2. Brúðkaup Margrétar og Heiðars :!:

jemundur, eftir að skrifa þetta kemur í ljós að ég er sem sagt ekki lengur litla Særún, neibb, stóra Særún er mætt :$

Liebe Grüsse og hafið það gott á nýju ári :!:


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.02.2006 21:02:39 / saerunsv

hmm

Long time no see:!: Einmitt, alltaf jafn upptekið við svo gott sem ekki neitt, allavega veit ég ekki í hvað ég eyði tímanum, né peningum:S Litli vinnualkapúkinn náði tökum á mér í janúar og aumingjas námið sat á hakanum á meðan, en núna er farið að hægjast um eftir útsölubrjálæðið svo að ég verð víst að fara að sinna þessu námi mínu eitthvað. Byrja á morgun ;) Á morgun segir sá lati, hehe, en í alvöru, þá byrjaði ég eiginlega í gær, svo á morgun er annar í lærdómi, oddahittingur og allt að gerast. Á morgun er ég sem sagt í fríi í vinnunni svo ég get notað tímann í að læra og svo um kvöldið farið í hreyfingu! Jebbs, ég er komin með kort aftur og tilheyri þeim hópi sem stendur í endalausu veseni með að hreyfa sig:!: að reyna að losna við aukakíló en aðallega að finna orkuna til þess að buga letina og koma sér út úr húsi og inn í líkamsræktarstöðina, í gallann og á hlaupabrettið í allri svitalyktinni sem á svoleiðis stöðum er!!!! Ég var búin að loka á þessa lykt og svo þegar ég mætti í dag, fann ég mér til mikillar skelfingar að þessi lykt er enn til staðar! það eina sem gerir það að verkum að mann langar ekki til þess að mæta!!!

jebbs, svo best er bara að vera heima og borða súkkulaði...

kv.


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.01.2006 00:15:54 / saerunsv

Gleðilegt ÁR!

Já, ég gleymdi því að netið væri til:S hef bara ekkert haft tíma til þess að kíkja á neitt á netinu, en nú er ég svo gott sem aftur komin í venjulega rútínu, svo ég ætti að geta eytt einhverjum tíma hérna. Í gær fékk ég loksins nýtt debetkort, búin að nota visakortið aðeins of mikið á meðan... en það er svo sem í lagi ;) núna verður það bara ekki notað fyrr en ég skelli mér til útlanda, planið er Barcelona svona á næstu mánuðum:haha: og ef ekki, þá er það bara hið gamla góða Þýskaland!!!

Ich liebe Deutschland, heyrði einmitt konu tala illa um Wiesbaden í dag og var næstum farin að blanda mér í málið og segja henni hversu yndisleg borg þetta væri:S

lieblieb


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.12.2005 15:34:37 / saerunsv

Búin í prófum!!!

Já, ég er loksins búin í þessum 4 prófum, yndislegt!!! Það er líka orðið gríðarlega tómlegt hérna í Odda, hverjum hefði dottið í hug að við Silvia værum einar eftir að læra 21. desember, sennilega engum, en það er staðreynd, við erum ALEINAR á 3. hæð að gera ritgerð!!!
Jólaandinn er nú samt farinn að segja til sín, næstum búin með allar jólagjafir, á eftir að pakka þeim inn og svona, en held að ég sleppi því bara að skreyta þetta árið, hef ekki haft neinn tíma og kemst bara ekki uppá háaloft til að ná í dótið, ég hef bara jól í hjarta mínu en ekki vegna skreytinga, gríðarlega væmin:$ Já og svo er snjór úti, og ég sem var búin að gefa upp vonina um hvít jól, eða svona næstum því, ofurbjartsýni mín náttúrulega gefst aldrei upp!
Í kvöld er svo jólaballið, sem ég var búin að ákveða að fara á, en vegna anna hef ég bara ekki tíma, svo ég segi bara góða skemmtun til ykkar allra sem farið á ballið:!:

lieblieb


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.12.2005 13:15:33 / saerunsv

I'm so lonely!!!

Wow, ég er svo gott sem alein uppí Odda að læra fyrir próf! Mér finnst þetta ósanngjarnt, af hverju eru ekki allir búnir á sama tíma? Það eru örfáar hræður að læra hérna og enginn hefur neinn metnað fyrir því sem hann er að gera, allir að hugsa um jólagjafirnar sem þeir eiga eftir að kaupa og pakka inn og koma svo til réttra aðila, ég líka, veit ekki alveg hvenær ég á að pakka þessu inn, og svo, hvað gefur maður 6. mánaða gömlu stúlkubarni? Ég hef eiginlega bara ekki hugmynd, hélt að það væri svo auðvelt en svo er þetta eina gjöfin sem ég á eftir! En á morgun er ég komin í jólafrí, þó ég eigi eftir að skrifa ritgerð og skila henni 22. des, en þá er bara enn meiri ástæða til að vera dugleg núna,

lieblieb frá Odda...


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.12.2005 12:40:02 / saerunsv

Evuafmæli...

Til hamingju með afmælið Eva Björg ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.12.2005 09:30:27 / saerunsv

Jólahvað!!!

Komin í Odda enn og aftur, og auðvitað að gera ekkert annað en að reyna að komast yfir það þunglyndi sem fylgir því að vera seinust af vinkonunum búin í prófum:!: Þetta ætti ekki að vera leyfilegt:!: Eva var búin í gær og Þórey og Silvia á föstudag og svo Ragnheiður á mánudag og loks ég á miðvikudag eftir viku!!! og ekki nóg með það, þá eru eftir 2 ritgerðir!!! ég held að jólin komi bara ekkert í ár:S en annars, í sambandi við jólin og jólaverslun, þá held ég bara að ég sé að missa mig í verslunaræði, ekki skemmir fyrir að vera að vinna við að selja föt, það gerir það bara að verkum að mig langar í allt saman, verð samt voðalega fegin þegar eitthvað sem mig langar í selst eða klárast...

Fröken Grinch kveður að sinni, lieblieb


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.12.2005 14:57:29 / saerunsv

Búðarrölt

Vei, ég er búin með 1 próf!!! Heimspekileg forspjallsvísindi eru búin og bara 3 eftir:D Eftir prófið fór ég í fylgd Silviu og Ragnheiðar í skóleiðangur í Kringluna, veit að ég á nóg af skóm, en það má alltaf á sig skóm bæta8) Það tók okkur reyndar ansi langan tíma að finna skó við hæfi, ég er ekkert svo einföld þegar það kemur að einhverju sem ég á að hafa í kringum mig eða klæðast... en eftir langa leit (skór á Íslandi eru bara ekkert æðislegir!!!!) fann ég samt skó sem mig langar í, kannski meira en bara 1 par, en 1 par er nóg í bili ;) Ég hef nú ekki keypt mér skó síðan í ágúst, sem er nú bara met hjá mér, það hefur bara aldrei liðið svona langt á milli skókaupa, ekki furða þó að mér hafi fundist eitthvað vanta í líf mitt á tímabili :$
Sný mér nú aftur að Formel 1 og Michael Schumacher...

Lieblieb


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.12.2005 23:33:37 / saerunsv

Liebe liebe ...

Mmm... nýja ástin í mínu lífi er yndisleg, ég veit bara ekki hvernig ég á að geta skilið mig frá henni og gert það sem ég á að gera, að læra og leiðindi :( Já, þessi nýja ást er diskurinn hans Garðars Thór Cortes :!: Ég fór á tónleikana í gær og þeir voru guðdómlegir og svo er ég núna að hlusta á diskinn og bara vá vá vá... hann er yndislegur :D Ég vildi að ég gæti sungið svona vel, en ég gaula bara með öllum sem til yndisauka og hljóðmengunar...

» 2 hafa sagt sína skoðun

30.11.2005 11:43:24 / saerunsv

Draumur...

En annars, mig dreymdi alveg fáránlegan draum í morgun eftir að ég sofnaði aftur8| Mig dreymdi að ég væri úti í Þýskalandi, hvar annars staðar, og ég var í heimsókn hjá Thorsten, sem var í rauðri rúllukragapeysu og blárri peysu utan yfir, og mér fannst það flott:!: Hvað þýðir það eiginlega???


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.11.2005 11:41:22 / saerunsv

Dreissigjähriger Krieg

Og enn einn fyrirlesturinn, en sá seinasti og ég er svo ánægð, get ekki beðið eftir að vera búin með þetta og fara að leggjast yfir ritgerðirnar ;)

lieblieb


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.11.2005 23:52:49 / saerunsv

:)

Og enn eitt annað föstudagskvöldið fyrir framan tölvuna!!! sem gerir það að verkum að ansi lítið gerist, og sérstaklega að eitthvað klárist, ég held að heilinn starfi bara illa á föstudags- og laugardagskvöldum, hann er ekki gerður fyrir að þurfa að hugsa þá... En annars, þá er ég búin að taka allar þær mögulegu og ómögulegu pásur sem ég get, bara til þess að fresta þessu eitthvað, svona svo mér muni líða enn verr í vikunni, er enn að bíða eftir lækningu við frestunaráráttu!!! En eitt sem ég afkastaði í gær, og er mjög ánægð með það, ég keypti mér flugmiða :) og ég get farið hvert sem er í Evrópu :) me happy....

Lieblieb

Særún


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.11.2005 10:58:18 / saerunsv

Georg Kaiser

Þvílík afköst í gangi:!: Byrjaði í gær um kl 22:00 að gera fyrirlestur og er að fara að flytja hann núna eftir ca. 15 mín 8| Silviuisminn er búinn að ná tökum á mér, vonandi mun þetta allt fara vel... ef ekki þá mun ég ekki muna eftir þessu sökum þreytu og taugaveiklunar ;)

lieblieb


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.11.2005 20:24:21 / saerunsv

Grosser Erfolg!!!

Jáh, það var svo gaman í dag:!: Mætti í tíma og þurfti ekki að gera neitt nema að hlusta (geri reyndar aldrei neitt annað ;)) en núna var það í lagi, af því að það voru tveir fyrirlestrar sem tóku allan tímann! Síðan í seinni tímanum var hinn glæsilegi fyrirlestur okkar Silviu um varninginn góða, sem allir ættu alltaf að hafa hjá sér, immer SICHER sein!!! :haha: Það er nú ekki svo oft sem maður leikur í auglýsingum:lol:

lg...


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7